Brasilía 2-0 Kosta Ríka
1-0 Coutinho(91′)
2-0 Neymar(97′)
Brasilía er komið skrefi nær 16-liða úrslitum á HM í Rússlandi eftir mjög tæpan sigur á Kosta Ríka nú í dag.
Brassar voru lengi að komast í gang í dag en fyrsta mark leiksins var skorað á 91. mínútu í uppbótartíma.
Philippe Coutinho skoraði það mark fyrir Brassana áður en Neymar bætti við öðru þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og lokastaðan, 2-0.