Caglar Soyuncu, leikmaður Freiburg, hefur staðfest það að Arsenal hafi áhuga á að fá sig í sínar raðir.
Soyuncu er 22 ára gamall varnarmaður og spilaði virkilega vel með Freiburg á síðustu leiktíð.
Hann vill sjálfur komast til Arsenal en segir að hann ráði því ekki sjálfur og að Freiburg verði að gefa grænt ljós.
,,Arsenal er möguleiki og ég vil fara þangað en ég á þrjú ár eftir af mínum samningi og allt er undir Freiburg komið,“ sagði Soyuncu.
,,Ég hef fengið tilboð frá liðum í Tyrklandi. Ég get ekki gefið ykkur nafn en ég hafnaði þeim. Ég vil ekki spila þar þessa stundina.“
,,Ég vil halda mínum ferli áfram í Evrópu og ég vil spila fyrir stærstu félögin.„