Southampton á Englandi er að missa einn sinn besta leikmann, Dusan Tadic, samkvæmt De Telegraaf í Hollandi.
Tadic hefur verið á mála hjá Southampton frá árinu 2014 en hann kom þá til félagsins frá FC Twente.
Tadic hefur verið lykilmaður hjá Southampton undanfarin fjögur ár og verið þeirra mest skapandi leikmaður.
Ajax er nú að tryggja sér leikmanninn frá Southampton og mun hann kosta í kringum 18 milljónir punda.
Marc Overmars, yfirmaður knattspyrnumála Ajax, var staddur á Englandi í dag til að klára kaupin samkvæmt þessum fregnum.