Íslenska landsliðið er í uppáhaldi hjá mörgum þessa stundina en liðið leikur á HM í Rússlandi.
Íslenska liðið hefur unnið sér inn marga stuðningsmenn eftir hetjulega frammistöðu á EM í Frakklandi árið 2016.
Steve Aoki er mikill aðdáandi okkar manna en hann spilar nú á Secret Solstice tónlistarhátíðinni í Reykjavík.
Aoki steig á svið í kvöld í íslensku landsliðstreyjunni og ljóst að hann heldur með okkar mönnum á HM.
Aoki kemur frá Bandaríkjunum en Bandaríkin náði ekki að tryggja sér sæti í keppninni í sumar.
Hér má sjá myndir frá tónleikum kvöldsins.