Manchester United hefur staðfest kaup sín á miðjumanninum Fred frá Shaktar Donetsk.
Talsvert er síðan að félögin náðu saman um 52 milljóna punda kaupverðið.
Nú hefur Fred fengið atvinnuleyfi og skrifað undir fimm ára samning við United með möguleika á sjötta árinu.
Hann er staddur á HM í Rússlandi með landsliði Brasilíu.
United kynnti hann til leiks með myndbandi og var lukkudýrið Fred The Red í hlutverki Alexis Sanchez á píanóinu.
Myndbandið er hér að neðan.
Ladies and gentlemen: we have an announcement to make…#BemVindoFred #MUFC pic.twitter.com/XG4suufEMu
— Manchester United (@ManUtd) June 21, 2018