Manchester United hefur staðfest kaup sín á miðjumanninum Fred frá Shaktar Donetsk.
Talsvert er síðan að félögin náðu saman um 52 milljóna punda kaupverðið.
Nú hefur Fred fengið atvinnuleyfi og skrifað undir fimm ára samning við United með möguleika á sjötta árinu.
Hann er staddur á HM í Rússlandi með landsliði Brasilíu.
,,Þetta er stærsta félag í heimi,“ sagði 25 ára gamli leikmaðurinn eftir að hafa skrifað undir.
,,Ég er stoltur af því að verða hluti af þessu stóra félagi, að vinna með Jose Mourinho var tækifæri sem ég gat ekki látið fara frá mér.“
The wait is over.#BemVindoFred ?? #MUFC
Read: https://t.co/9xFjVm9Z9U pic.twitter.com/AZpfUYk3fH
— Manchester United (@ManUtd) June 21, 2018