Valur 2-1 FH
1-0 Patrick Pedersen(18′)
1-1 Steven Lennon(32′)
2-1 Einar Karl Ingvarsson(39′)
Það fór fram stórleikur í Pepsi-deild karla í kvöld er Íslandsmeistarar Vals fengu FH í heimsókn á Origo-völlinn.
Það var boðið upp á mjög fjörugan leik í kvöld og fögnuðu Valsmenn 2-1 sigri og komust á topp deildarinnar.
Patrick Pedersen skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu fyrir Val eftir lélegan varnarleik gestana.
Steven Lennon jafnaði metin á 32. mínútu leiksins fyrir FH-inga með frábæru marki eftir sendingu Geoffrey Castillion.
Aðeins sjö mínútum síðar kom svo sigurmark leiksins er Einar Karl Ingvarsson skoraði fallegt mark fyrir Val eftir sendingu frá Sigurði Agli Lárussyni.
Valur er nú með 21 stig á toppi deildarinnar en FH situr í fimmta sætinu, fimm stigum frá toppnum.