Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
Endanleg ákvörðun um það hvort Jóhann Berg Guðmundsson geti spilað gegn Nígeríu verður tekinn á morgun.
Jóhann meiddist á kálfa gegn Argentínu og er afar tæpur fyrir leikinn. Íslenska liðið reynir þó að koma honum í lag enda afar mikilvægur hluti.
,,Þetta eru hlutir sem við fórum yfir áður en við komum hingað, það er ekki gott að horfa of langt fram því þú veist aldrei hvað gerist,“ sagði Helgi Kolviðsson um áherslur fyrir leikinn.
,,Núna er Jói tæpur, þá verðum við að gera breytingar. Við erum búnir að hugsa leikinn, þetta verður öðruvísi leikur. Öðruvísi svæði sem við getum unnið í og nýtt okkur. Við höfum pælt í þessu.“
,,Jói er tæpur, ef hann er ekki með kemur maður í hans stað. Hlutirnir breytast þá, við tökum endanlega ákvörðun á morgun. Það geta orðið breytingar á taktík.“