Portúgal 1-0 Marokkó
1-0 Cristiano Ronaldo(4′)
Cristiano Ronaldo reyndist enn og aftur hetja Portúgals í dag er liðið mætti Marokkó í riðlakeppni HM.
Ronaldo tryggði Portúgölum stig í fyrsta leik gegn Spáni en hann gerði þá þrennu í 3-3 jafntefli.
Ronaldo var svo aftur lykillinn í dag en hann skoraði eina mark Portúgals í 1-0 sigri.
Marokkó er á leið heim eftir tvö töp til þessa en liðið tapaði fyrir Íran í fyrsta leik.