Valur fær heldur betur verðugt verkefni í fyrstu umferð í Meistaradeildinni. Liðið mætir Rosenborg.
Matthías Vilhjálmsson er í herbúðum liðsins en hann hefur verið að glíma við meiðsli.
Nicklas Bendtner er einnig þarna og Andre Hansen sem lék með KR og Alexander Söderlund sem var hjá FH.
Valsmenn fara í Evrópudeildina ef þeir tapa þessu einvígi en Rosenborg er besta lið Noregs.