Blaðamaðurinn Vasily Utkin mun ekki lýsa fleiri leikjum á heimsmeistarakeppninni í Rússlandi.
Utkin vakti athygli Íslendinga á dögunum er hann ákvað að hrauna yfir okkar menn á eigin rás á Youtube.
Utkin sagði á meðal annars að Ísland væri komið á HM til að eyðileggja fótbolta og því fyrr sem við færum heim því betra.
Meira:
Rússnenskur blaðamaður hraunar yfir íslenska landsliðið
Utkin hefur nú verið rekinn úr starfi eftir þessi ummæli og mun ekki sjá um fleiri leiki á mótinu í Rússlandi.
Utkin neitaði sjálfur að tjá sig um málið og bað aðdáendur að leyfa sér að vera í friði og virða hans einkalíf.
Myndbandið sem Utkin birti fékk hörð viðbrögð víðs vegar um heim og voru margir sem voru ósammála blaðamanninum.