Emre Can, leikmaður Liverpool, mun fara í læknisskoðun hjá ítalska stórliðinu Juventus á morgun.
Frá þessu greinir virti blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio en Can er að yfirgefa England eftir fjögurra ára dvöl.
Can kom til Liverpool frá Bayer Leverkusen árið 2014 en hann var fyrir það hjá Bayern Munchen.
Can á að baki 115 deildarleiki fyrir Liverpool og einnig 20 landsleiki fyrir Þýskaland.
Miðjumaðurinn verður samningslaus í lok mánaðarins og er Juventus að fá hann á frjálsri sölu.