Arsenal hefur staðfest komu markvarðarins Bernd Leno en skiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga.
Leno hefur verið í viðræðum við Arsenal síðustu vikur en hann fór ekki með Þýskalandi á HM í Rússlandi.
Leno er 26 ára gamall markmaður en hann hefur spilað fyrir Bayer Leverkusen síðustu sjö ár.
Þar hefur Leno staðið sig með prýði og á að baki sex landsleiki fyrir Þýskaland.
Leno er annar leikmaðurinn sem Arsenal fær í sumar en Stephan Lichtsteiner kom einnig frá Juventus.