Harry Kane er búinn að Englandi yfir gegn Túnis á HM í Rússlandi en liðin leika sinn fyrsta leik í riðlakeppninni.
Englendingar hafa byrjað leikinn af miklum krafti og hafa nokkrum sinnum ógnað marki Túnis.
Það tók aðeins 11 mínútur fyrir England að skora og að sjálfsögðu var það fyrirliðinn Kane sem skoraði mikið á síðustu leiktíð.
John Stones átti skalla eftir hornspyrnu sem markvörður Túnis varði en Kane var mættur til að fylgja á eftir.
Hér má sjá markið.
GOAL FOR #ENG
Harry Kane taps it in to give England the lead! #WorldCup pic.twitter.com/kxFxHZ4PiU
— FootyMatrix ⚽ (@Footy_Matrix) 18 June 2018