Ísland sýndi heiminum hvernig á að stöðva Lionel Messi, þetta segir Dejan Lovren, varnarmaður Króatíu.
Lovren og félagar mæta Messi og Argentínu í næsta leik en Messi er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður heims.
,,Þeir eru með einn besta leikmann heims, möguleika þann besta,“ sagði Lovren við Liverpool Echo.
,,Ef þú sást leikinn gegn Íslandi, þeir gerðu frábærlega og sýndu hvernig á að verjast gegn honum.“
,,Þú getur ekki stoppað hann einn, þú verður að verjast sem eitt lið. Það var það sem Ísland gerði.“