Eden Hazard viðurkennir að hann gæti verið á förum til Real Madrid í sumar ef liðið sýnir sér áhuga.
Hazard er á mála hjá Chelsea á Englandi en mikið er í óvissu hjá bláliðum þessa stundina.
,,Þeir vita hvað þeir þurfa að gera ef þeir vilja fá mig,“ sagði Hazard við blaðamenn í dag varðandi áhuga Real.
,,Ég vil ekki tala um félagaskipti þessa stundina. Ég hef verið spurður svo oft út í þetta. Ég einbeiti mér að HM.“
,,Ég hef unnið allt mögulegt í London nema Meistaradeildina. Ég er á þessum stað vegna Chelsea.“
,,Ég er að bíða eftir því að sjá hvort þjálfarinn verði áfram eða ekki. Real Madrid er athyglisvert og vekur minn áhuga, allir vita það.“