Chelsea í ensku úrvalsdeildinni er nú loksins að ráða nýjan knattspyrnustjóra eftir erfiðar vikur.
Nokkrir miðlar greina frá þessu í dag en framtíð Antonio Conte hefur verið í óvissu í allt sumar.
Conte vill ekki halda áfram hjá Chelsea og er að bíða eftir því að félagið segi sér upp svo hann fái pening í vasann.
Samkvæmt fregnum dagsins er Chelsea nú loksins að ráða Maurizio Sarri sem hætti hjá Napoli eftir síðustu leiktíð.
Chelsea er tilbúið að borga upp samning Napoli en það mun kosta félagið 9,5 milljónir punda.
Gianfranco Zola mun vera Sarri til aðstoðar en hann er goðsögn hjá félaginu og var þar í mörg ár.