Nikola Kalinic hefur verið sparkað úr króatíska landsliðshópnum en landsliðsþjálfarinn Zlatko Dalic hefur nú staðfest þessar fregnir.
Fyrr í dag var greint frá því að líklegt væri að Kalinic yrði sendur heim eftir atvik sem kom upp gegn Nígeríu á dögunum.
Kalinic átti að koma inná sem varamaður seint í leiknum gegn Nígeríu en hann neitaði og sagðist vera meiddur í baki.
Sama atvik hafði komið upp í vináttuleik gegn Brasilíu fyrir HM sem og á æfingu hjá króatíska liðinu.
Dalic tók sjálfur þá ákvörðun að reka Kalinic einfaldlega heim ef hann er ekki leikfær.
Króatía mætir Argentínu í næsta leik HM og þar á eftir spila þeir við íslensku strákana.