Framherjinn Antoine Griezmann hefur skrifað undir nýjan samning við Atletico Madrid á Spáni.
Félagið staðfesti þetta í kvöld en Griezmann greindi fyrr í vikunni frá því að hann væri ekki á förum í sumar.
Framtíð leikmannsins var í mikilli óvissu í byrjun sumar en Barcelona vildi fá hann í sínar raðir.
Griezmann hefur þó ákveðið að halda áfram sínum ferli í Madríd þar sem hann er mjög vinsæll.
Griezmann skrifaði undir til ársins 2023 og er því samningsbundinn næstu fimm árin.