Íslenska landsliðið tekur því nokkuð rólega þessa stundina en liðið lék við Argentínu í fyrsta leik HM í gær.
Okkar menn náðu í stig gegn stjörnuprýddu liði Argentínu en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Allir leikmenn íslenska liðsins áttu góðan leik og þar á meðal fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.
Aron ákvað að skella sér í klippingu í dag áður en Ísland mætir Nígeríu á föstudaginn.
Það var enginn annar en Rúrik Gíslason sem sá um að raka hárið af Aroni en hann birti sjálfur mynd af því í dag.
Myndina má sjá hér.