Leeds United hefur staðfest það að Marcelo Bielsa hafi tekið við sem stjóri liðsins.
Bielsa gerir tveggja ára samning en hann er 62 ára gamall.
Bielsa hefur mikla reynslu og hefur þjálfað í næstum 30 ár.
Bielsa stýrði landsliði Argentínu frá 1998 til 2004 en einnig var hann með Síle.
Bielsa hefur stýrt Athletic Bilbao, Marseille og Lille en hann var einnig með Lazio í tvo daga.