Manchester United ætlar ekki að selja sóknarmanninn Anthony Martial í sumarglugganum.
Sky Sports greinir frá þessu í kvöld en Martial vill sjálfur komast burt og hefur umboðsmaður hans staðfest það.
Umboðsmaður Martial tjáði sig í vikunni og sagði að það væri best fyrir leikmanninn að fara annað.
United sér hins vegar Martial fyrir sér sem mikilvægan leikmann á næstu leiktíð og ætlar ekki að reyna að selja hann annað.
Martial kom til United árið 2015 fyrir 36 milljónir punda en hann var áður á mála hjá Monaco.