Arsenal lagði fram tilboð í varnarmanninn David Luiz en franskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag.
Luiz var ekki inni í myndinni hjá Antonio Conte á seinni hluta síðasta tímabils og fékk lítið að spila.
Arsenal ákvað að reyna við Luiz á dögunum og bauð 17,6 milljónir punda í Brasilíumanninn.
Chelsea var þó ekki lengi að hafna því boði en óvíst er hvort Conte verði áfram hjá Chelsea á næstu leiktíð.
Luiz spilaði síðast fyrir Chelsea þann 5. febrúar síðastliðinn og komst ekki á HM með Brasilíu.
Möguleiki er á að Arsenal bjóði aftur í leikmanninn sem á að baki 197 leiki fyrir Chelsea.