Mohamed Salah bætti met Didier Drogba á síðustu leiktíð yfir flest mörk skoruð af afrískum leikmanni í ensku úrvalsdeildinni.
Salah endaði á að bæta mörg met en enginn hefur skorað jafn mikið á einu tímabili í úrvalsdeildinni og Egyptinn.
Salah segist hafa rætt við Drogba áður en hann bætti met fyrrum framherja Chelsea sem náði að skora 29 mörk í deildinni árið 2010.
,,Þegar ég hafði skorað 20 mörk þá ræddi ég við Didier Drogba,“ sagði Salah við L’Equipe.
,,Hann grátbað mig um að bæta metið hans og ég svaraði hlæjandi að ég myndi að sjálfsögðu gera það.“
,,Ég náði að gera það á endanum og hugsaði með mér að það væru nóg af leikjum eftir og að ég gæti bætt metið sjálft yfir flest mörk í deildinni á einu tímabili.“