Marcos Rojo fékk skýr skilaboð frá Jose Mourinho er Alexis Sanchez samdi við United í janúarglugganum.
Rojo og Sanchez hafa aldrei verið bestu vinir og vissi Mourinho það. Hann bað Rojo vinsamlegast um að brjóta Sanchez ekki á æfingu.
,,Þegar félagið keypti Sanchez þá bað Mourinho mig um að brjóta hann ekki á æfingu,“ sagði Rojo.
,,Alexis er frábær leikmaður en við náðum aldrei vel saman á vellinum.“
,,Hvort sem það var í landsleikjum eða þegar United mætti Arsenal þá sparkaði ég í hann og hann gerði það sama við mig.“
,,Við móðguðum hvorn annan og þegar ég frétti að hann væri að koma hingað sagði ég ‘Oh, andskotinn, nei, nú á þessi gaur eftir að vera hérna’.