Arsene Wenger er að íhuga það að snúa aftur til Japan og gæti haldið þjálfaraferlinum áfram þar í landi.
Þessi 68 ára gamli Frakki kvaddi Arsenal í sumar þar sem hann var við stjórnvölin í heil 22 ár.
Wenger hefur staðfest það að hann sé ekki hættur og eru mörg félög sem vilja nýta sér krafta hans.
Lið í Evrópu og í Bandaríkjunum hafa sýnt Wenger áhuga en samkvæmt fréttum gæti hann verið á leið til Japan.
Wenger stýrði Nagoya Grampus Eight í Japan áður en hann tók við Arsenal árið 1996.