Rúnar Kristinsson var ánægður með sína menn í KR eftir 2-0 sigur á KA í kvöld. KR-ingar voru sterkir í kvöld en hafa byrjað mótið erfiðlega.
,,Þetta var mjög góð frammistaða með það í huga að við skoruðum fyrsta markið í leiknum og héldum hreinu, í fyrsta skiptið í sumar,“ sagði Rúnar.
,,Þeir eru gríðarlega sterkir og vel mannaðir en við náðum að halda þeim í skefjum og hleyptum þeim ekki mikið að markinu okkar.“
,,Við erum með tvo frábæra bakverði sem vilja koma fram og þeir verða að nýta réttu tækifærin til að koma fram og þeir gerðu það vel í dag.“
,,Þetta er mjög þéttur pakki. Ef þú nærð tveimur eða þremur góðum sigrum ertu kominn inn í þennan pakka en það er langt í land og mótið er rétt að byrja.“
Nánar er rætt við Rúnar hér fyrir neðan.