Það hefur ekki farið framhjá neinum að Mohamed Salah meiddist í úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Salah meiddist eftir baráttu við Sergio Ramos, leikmann Real Madrid, og þurfti að yfirgefa völlinn.
Mikið hefur verið rætt um atvikið og vilja sumir meina að Ramos hafi reynt viljandi að meiða Egyptann.
Nú er talað um að HM í Rússlandi sé í hættu fyrir Salah en óvíst er hvort hann verði klár í næsta mánuði.
Ramos fagnaði sigri með Real 3-1 í gær og fékk að lyfta bikarnum í Meistaradeildinni þriðja árið í röð.
Spánverjinn sendi Salah skilaboð á Twitter í dag og óskaði honum góðs bata.
El fútbol te enseña la cara más dulce a veces y la más amarga otras. Ante todo somos compañeros. Pronta recuperación, Salah. El futuro te espera.||Sometimes football shows you it’s good side and other times the bad. Above all, we are fellow pros. #GetWellSoon @MoSalah
— Sergio Ramos (@SergioRamos) 27 May 2018