fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433

Plús og mínus – Rautt fyrir að sparka í brúsa

Victor Pálsson
Sunnudaginn 27. maí 2018 21:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjarnan þurfti að sætta sig við eitt stig í Pepsi-deild karla í kvöld er liðið fékk Grindavík í heimsókn.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en heimamenn hefðu klárlega átt að skora meira og fengu færin til þess.

Hér má sjá það góða og slæma úr leiknum.

Plús:

Stjörnumenn spiluðu fínan sóknarleik í dag og spiluðu í raun betur en þeir hafa gert oft í sumar.

Grindavík fær plús fyrir baráttuanda og vilja til þess að næla í stig. Ætluðu ekki að fara tómhentir heim.

Maciej Majewski, markvörður Grindavík, átti stórleik. Leysti Kristijan Jajalo af hólmi og stóð svo sannarlega fyrir sínu.

Mínus:

Hvernig í ÓSKÖPUNUM skoraði Stjarnan ekki fleiri mörk í leiknum? Fengu endalaust af færum til þess að skora. Ótrúlegt.

Sito, framherji Grindavíkur, hefði getað bætt við er hann fékk dauðafæri einn gegn Haraldi í stöðunni 1-0 en tókst ekki að skora. Hefði getað skipt sköpum.

Ég held að Stjarnan hafi fengið 15 hornspyrnur í leiknum. Þurfa að nýta þær betur, það er á hreinu.

Milan Stefán Jankovic fékk rautt spjald á bekknum hjá Grindavík. Sparkaði í vatnsbrúsa á hliðarlínunni og var rekinn upp í stúku. Aðeins að róa sig.

Þrátt fyrir að hafa verið mikið betri í leiknum þá voru Stjörnumenn líka heppnir að fá ekki á sig annað mark. Grindvíkingar hefðu getað stolið þessu. Sofandaháttur í vörninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433
Fyrir 14 klukkutímum

Besta deild kvenna: Fylkir stal stigi undir lokin gegn Þrótti

Besta deild kvenna: Fylkir stal stigi undir lokin gegn Þrótti
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ætla með málið lengra – Báðu hann um að drepa sig og sungu um að hann væri nauðgari

Ætla með málið lengra – Báðu hann um að drepa sig og sungu um að hann væri nauðgari
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sancho þénaði sturlaðar upphæðir utan vallar á síðustu leiktíð

Sancho þénaði sturlaðar upphæðir utan vallar á síðustu leiktíð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þvílík endurkoma – Sjáðu markið sem stjarna Arsenal skoraði eftir margra mánaða fjarveru

Þvílík endurkoma – Sjáðu markið sem stjarna Arsenal skoraði eftir margra mánaða fjarveru
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Munu setja sig í samband við De Bruyne á ný

Munu setja sig í samband við De Bruyne á ný
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool