Íslandsmeistarar Vals unnu sigur í Pepsi-deild karla í kvöld er liðið fékk Breiðablik í heimsókn.
Það var Ólafur Karl Finsen sem tryggði Val 2-1 sigur en hann hafði komið inná sem varamaður þremur mínútum fyrir sigurmark leiksins.
Hér má sjá það góða og slæma úr leiknum.
Plús:
Mögnuð innkoma hjá Ólafi Karl Finsen sem tryggði Val sigur með sinni annari snertingu í fyrsta deildarleik í sumar.
Gísli Eyjólfsson hélt áfram að stjórna sóknarleik Blika, spilaði félaga sína í góð færi en þeir nýttu þau ekki vel.
Þóroddur Hjaltalín tók frábæra ákvörðun þegar Jonathan Hendricx féll í baráttu við Hauk Pál. Blikar heimtuðu víti en Jonathan var fyrir utan þegar brotið var og Þóroddur sá það.
Spilamennska Vals í síðari hálfleik, minnti á síðustu leiktíð. Kraftur og gæði sem sáust svo oft í fyrra.
Mínus:
Varnarleikur Rasmus Christiansen í marki Breiðabliks var vægast sagt slakur. Lét snúa á sig og gerði ekkert til að blokkera skotið.
Það var vont að sjá hversu aftarlega Blikar féllu í seinni hálfleiknum, þorði ekki að stýra leiknum.
Ákvörðunartaka Arnþórs Ara á síðasta þriðjungi reyndist Blikum afar dýr.