Keflavík 1-3 ÍBV
0-1 Sindri Snær Magnússon(17′)
0-2 Sigurður Grétar Benónýsson(68′)
1-2 Lasse Rise(72′)
1-3 Sindri Snær Magnússon(89′)
Það gengur einfaldlega ekkert hjá Keflavík í Pepsi-deild karla en liðið fékk ÍBV í heimsókn í sjöttu umferð deildarinnar í kvöld.
ÍBV var ekki í miklum vandræðum með Keflvíkinga og höfðu betur að lokum með þremur mörkum gegn einu.
Bæði lið voru með tvö stig án sigurs á botni deildarinnar fyrir leikinn en fyrsti sigur ÍBV er nú kominn í hús.
Keflavík er enn aðeins með tvö stig á botninum og ljóst er að sumarið verður erfitt fyrir nýliðana.