Hallgrímur Jónasson, leikmaður KA, segir að spilamennska liðsins verði að fara að lagast eftir 2-0 tap gegn KR í kvöld.
,,Ég er enn og aftur svekktur í sumar. Við spiluðum ágætis leik en ég held að þeir hafi unnið sanngjarnt,“ sagði Hallgrímur.
,,Ég er orðinn þreyttur á að tala um aðstæður en það er eðlilegt. Það er erfitt að spila boltanum á jörðinni á Íslandi. Við erum því miður ekki að ná þeim stigum sem við ætluðum okkur.“
,,Okkar vandamál? Ég er ekki mikið fyrir að ræða það í fjölmiðlum, við ræðum það innan liðsins en það er klárt mál að við þurfum að vinna betur saman.“
Nánar er rætt við Hallgrím hér fyrir neðan.