Guðlaugur Victor Pálsson varð bikarmeistari með Zurich í dag en liðið mætti Young Boys í úrslitunum í Sviss.
Guðlaugur er fyrirliði Zurich og spilaði allan leikinn í dag og sá sína menn hafa betur 2-1.
Michael Frey kom Zurich yfir snemma í fyrri hálfleik áður en Antonio Marchesano bætti við öðru í þeim síðari.
Young Boys lagaði stöðuna þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum en það dugði ekki til og lokastaðan 2-1.
Zurich átti frábært tímabil í Sviss en liðið tryggði sér einnig sæti í Evrópudeildinni fyrir næstu leiktíð.