Aron Einar Gunnarsson hefur undanfarnar vikur verið í Katar þar sem hann var í endurhæfingu.
Landsliðsfyrirliðinn hefur verið að vinna í því að koma sér í form til að ná HM með Íslandi í sumar.
Aron er einn allra mikilvægasti leikmaður Íslands og spilaði stórt hlutverk er við tryggðum okkur farseðil til Rússlands.
Aron staðfesti það í dag að hann væri á leið til Cardiff og er búinn með verkefnið í Katar.
Aron mun fara heim til Cardiff og stoppa í stutta stund áður en hann kemur svo til Íslands.