Loris Karius mun aldrei gleyma kvöldinu í kvöld er Real Madrid spilaði við Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Karius stóð vaktina í marki Liverpool í 3-1 tapi en hann gerði sig sekan um tvö hræðileg mistök.
Fyrst gaf Karius boltann á Karim Benzema sem þakkaði pent fyrir sig og setti boltann í autt mark.
Karius missti svo síðar skot Gareth Bale í netið er hann skoraði sitt annað mark í leiknum.
Seinni mistök Karius má sjá hér.
Gareth Bale with his second goal ⚽️⚽️ #UCLfinal pic.twitter.com/LDrOR28dmg
— NxtEleven (@NxtEleven) 26 May 2018