Nokkrir stuðningsmenn Liverpool lentu illa í því í gær í Úkraínu fyrir leik liðsins við Real Madrid á morgun.
Fjölmargir stuðningsmenn hafa gert sér leið til Kiev til að sjá leik Liverpool og Real í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Tveir hafa verið handteknir vegna árásarinnar sem átti sér stað um 11 leitið í gærkvöldi.
Ekki kemur skýrt fram af hverju ráðist var að mönnunum en götur Úkraínu geta talist ansi hættulegar.
Borgarstjóri Kiev hefur sagt það í viðtali við Liverpool Echo að öryggi stuðningsmanna Liverpool verði í fyrsta sæti á næstu dögum.
Hér má sjá myndir eftir slagsmál gærdagsins.