Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, útilokar það ekki að velja Gianluigi Buffon í landsliðið á ný.
Buffon hefur greint frá því að hann sé hættur með landsliðinu en Mancini mun skoða þann möguleika að velja hann.
,,Ég hef rætt við hann og hann hefur sagt mér hvað hann ætlar að gera,“ sagði Mancini á blaðamannafundi.
,,Hann vill halda áfram að spila og allir sem eru að spila og eru meðal þeirra bestu geta verið valdir í landsliðið.“
,,Ég virði ákvörðun hans að svo stöddu. Hann sagði mér frá þessu nokkrum dögum eftir að ég tók við.“