Miðjumaðurinn Xavi hefur krotað undir nýjan samning við lið Al Sadd í Katar. Þetta var staðfest í dag.
Xavi hefur undanfarin þrjú ár leikið í Katar en fyrir það var hann einn besti miðjumaður heims hjá Barcelona.
Xavi er 38 ára gamall í dag en krotaði þrátt fyrir það undir tveggja ára samning og spilar því til fertugs.
Xavi hefur spilað 67 leiki fyrir Al Sadd og hefur gert 18 mörk en hann er fastamaður í liðinu.
Xavi lék annars allan sinn feril með Barcelona en hann spilaði sinn fyrsta leik þar árið 1998.