Sky Sports heldur því fram að Manchester United sé á barmi þess að kaupa Fred frá Shaktar.
Sky segir að viðræður séu á lokastigi og að búist sé við að allt klárist á næstunni.
Fred er í 23 manna hópi Brasilíu sem fer á HM í sumar en Manchester City vildi fá hann.
Áhugi United hefur verið mikill síðustu vikur en Michael Carrick er hættur og Marouane Fellaini er líklega að fara frítt.
Fred er varnarsinnaður miðjumaður en Jose Mourinho vill styrkja varnar og miðsvæði sitt í sumar.