Rúrik Gíslason, landsliðsmaður, er samningslaus en hann hefur verið á mála hjá Sandhausen í Þýskalandi.
Rúrik gekk í raðir Sandhausan frá Nurnberg á þessu ári en fékk aðeins samning út tímabilið.
Rúrik er nú með íslenska landsliðinu á æfingum og undirbýr sig fyrir keppni á HM í Rússlandi.
Meira:
,,Vonaði að vonbrigðin myndu ekki endurtaka sig“
Rúrik segir að hann sé ekki að pæla í því hvað hann muni gera fyrr en eftir mótið í sumar.
,,Staðan er þannig að ég er með tilboð frá þeim sem ég er að velta fyrir mér bara,“ sagði Rúrik.
,,Ég kem bara til með að skoða mín mál að loknu HM. Ég held að það sé mikilvægt að einbeita sér að því núna.“
Nánar er rætt við Rúrik hér.