Mauricio Pochettino stjóri Tottenham hefur krotað undir nýjan fimm ára samning við félagið.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir Spurs en flestir stuðningsmenn félagsins elska hann.
Pochettino var að klára sitt fjórða tímabil með Tottenham og á enn eftir að vinna bikar.
Tottenham er að byggja upp öflugt lið og er að fara á nýjan og flottan heimavöll.
Allir aðstoðarmenn Pochettino hafa einnig skrifað undir fimm ára samninga.