Grindavík vann virkilega sterkan sigur í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið heimsótti Stjörnuna.
Grindavík gerði sér lítið fyrir og vann 3-2 útisigur gegn Stjörnunni, úrslit sem koma mörgum á óvart.
Rio Hardy gerði tvö mörk fyrir Grindavík í leiknum og sigurmark liðsins á 69. mínútu.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir sá þá um að klára ÍBV fyrir lið Breiðabliks er liðin áttust við í Kópavogi.
Berglind hefur verið frábær á leiktíðinni og gerði eina mark leiksins snemma í fyrri hálfleik.
Stjarnan 2-3 Grindavík
1-0 Katrín Ásbjörnsdóttir
1-1 María Sól Jakobsdóttir
1-2 Rio Hardy
2-2 Harpa Þorsteinsdóttir
2-3 Rio Hardy
Breiðablik 1-0 ÍBV
1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir