Wayne Rooney er ættur til Wasinghton þar sem hann klárar viðræður og fer í læknisskoðun hjá DC United.
Rooney yfirgaf Barbados í gær þar sem hann er í fríi með fjölskyldu sinni til að skrifa undir.
DC United hefur viljað kaupa Rooney síðustu vikur og umboðsmaður hans rætt við félagið.
Sagt er að þessi 32 ára framherji muni kosta félagið í kringum 12 milljónir punda.
Hann mun svo sjálfur þéna í kringum 4 milljónir punda á ári í laun og á að vera stjarna DC United.
Myndir af Rooney við komuna til Wasinghton eru hér að neðan.