Leiknir Reykjavík vann sinn fyrsta sigur í Inkasso-deild karla í kvöld er liðið mætti ÍR á Leiknisvelli.
Leiknir hafði byrjað mótið á þremur tapleikjum en unnu í kvöld góðan 3-1 sigur á ÍR.
Leiknismenn eru nú með þrjú stig í níunda sæti deildarinnar og ÍR sæti neðar einnig með þrjú stig.
Gott gengi HK heldur þá á fram en liðið vann Þrótt Reykjavík með sömu markatölu í kvöld.
HK er ósigrað í deildinni eftir fyrstu fjóra leikina og er með tíu stig á toppnum. Þróttarar eru með fjögur stig.
Þróttur R. 1-3 HK
0-1 Bjarni Gunnarsson
0-2 Kári Pétursson
1-2 Aron Þórður Albertsson
1-3 Ásgeir Marteinsson
Leiknir R. 3-1 ÍR
1-0 Sævar Atli Magnússon
2-0 Anton Freyr Ársælsson
3-0 Sólon Breki Leifsson(víti)
3-1 Björgvin Stefán Pétursson