Michael Carrick segir að það sé mjög kjánalegt að spyrja út í það hvort Paul Pogba verði hjá Manchester United á næstu leiktíð.
Pogba er sagður vera ósáttur í herbúðum United og að það andi köldu á milli hans og Jose Mourinho.
Carrick hlær þó að þeir sögusögnum og segir að það sé klárt að Pogba eigi framtíð fyrir sér hjá félaginu.
,,Þetta er heldur kjánaleg spurning. Auðvitað á hann framtíð hérna,“ sagði Carrick við Sky Sports.
,,Hann er stór leikmaður fyrir okkur og er á besta aldri. Hann á sín bestu ár eftir. Þetta er ekki eitthvað sem ég myndi hugsa tvisvar um.“