John Terry mun ekki þurfa að spila gegn Chelsea á næstu leiktíð ef Aston Villa verður í ensku úrvalsdeildinni.
Villa á möguleika á að komast upp á laugardaginn er liðið spilar við Fulham í úrslitaleik um laust sæti í efstu deild.
Terry hefur staðið vaktina vel í vetur hjá Villa en hann hafði áður verið aðal maðurinn hjá Chelsea í mörg ár.
Terry fór í næst efstu deild til að keppa ekki við Chelsea en nú gæti hann þurft að mæta sínum gömlu félögum.
Terry vill ekki spila gegn Chelsea og segir Steve Bruce, stjóri Villa, að hann megi sleppa því ef hann kýs að gera það.
,,Við munum ekki velja hann gegn Chelsea ef það er það sem hann vill,“ hafði Bruce að segja um málið í kvöld.