West Ham United hefur staðfest ráðningu sína á Manuel Pellegrini sem næsta stjóra félagsins.
West Ham vildi ekki halda David Moyes áfram eftir að hann bjargaði liðinu frá falli.
Pellegrini var síðast í starfi í Kína en hann hefur stýrt Real MAdrid, Manchester City og fleiri liðum.
Hann verður launahæsti þjálfari í sögu West Ham og verða miklar væntingar gerðar til hans.
,,Ég er glaður að fá Manuel til starfa, hann er einn virtasti þjálfari í heimi og við hlökkum til að vinna með honum,“ sagði David Sullivan einn eiganda félagsins.