Randers hefur tryggt sér áframhaldandi sæti í dönsku úrvalsdeildinni eftir sigur á Lyngby.
Randers vann einvígið gegn Lyngby 4-2 en Hannes Þór Halldórsson er markvörður liðsins.
Hannes fór meiddur af velli í leik liðsins gegn Lyngby í dag. Hannes meiddist í fyrri hálfleik og fór af velli í hálfleik.
Danskir fjölmiðlar telja að meiðsli hans séu ekki alvarleg, Hannes meiddist í nára.
Hann gat ekki sparkað út og ákvað því að fara af velli í hálfleik.