Arsenal hefur staðfest að Santi Cazorla hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.
Cazorla hefur glímt við meiðsli síðustu ár og lítið getað spilað.
Miðjumaðurinn frá Spáni heldur nú í nýtt ævintýri en ekki er vitað hvert hann fer.
Cazorla spilaði 180 leiki á sex árum með Arsenal.
Hann lék síðast með liðinu í október árið 2016 en hefur síðan þá verið meiddur.