Tottenham er að fá til sín ungstirnið Riqui Puig sem er á mála hjá spænska stórliðinu Barcelona.
Enskir miðlar greina frá þessu í dag en Puig hefur hafnað samningstilboði Barcelona og ætlar að leita annað.
Puig vill vinna undir stjórn Mauricio Pochettino en þessi 19 ára gamli leikmaður er talinn mikið efni.
Puig hefur æft með aðalliði Barcelona og spilaði sinn fyrsta leik með B-liði félagsins í febrúar.
Um er að ræða miðjumann sem önnur lið höfðu áhuga á en Tottenham virðist vera að vinna kapphlaupið.